Ísland mætir Georgíu í dag í lokaleik sínum í undankeppni HM 2023.
Til þess að komast uppfyrir Georgíu í riðlinum og tryggja sig á lokamótið þarf Ísland að vinna leikinn og gera það með fleiri stigum heldur en Georgía vann þá heima í Laugardalshöllinni í nóvember síðastliðnum, 85-88.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV kl. 16:00 að íslenskum tíma.
Karfan hitti Styrmi Snæ Þrastarson leikmann liðsins fyrr í dag og ræddi við hann stemninguna í hópnum, fyrri leikinn sem tapaðist í nóvember, hlutverk hans með landsliðinu og eftirvæntinguna að spila fyrir framan 10 þúsund manns.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil