spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaStyrmir frábær í tveggja stiga sigri Mons

Styrmir frábær í tveggja stiga sigri Mons

Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons lögðu United í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu 87-85.

Styrmir Snær var atkvæðamestur í liði Mons í leiknum með 28 framlagsstig, en á 34 mínútum spiluðum skilaði hann 18 stigum, 4 fráköstum, 7 stoðsendingum og stolnum bolta.

Eftir leikinn eru Styrmir Snær og félagar í 8. sæti deildarinnar með 17 sigra og 13 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -