09:46
{mosimage}
Signý Hermannsdóttir mun ekki leika með Stúdínum í Iceland Express deild kvenna í vetur. Signý er á leið í skóla og mun námið stangast þannig á við körfuboltann að hún sér ekki fram á að geta leikið með Stúdínum.
Signý er fyrirliði íslenska landsliðsins og er á meðal fimm frákastahæstu leikmanna í B-deild Evrópukeppni kvenna. Þetta kemur sér afar illa fyrir Stúdínur þar sem Signý var einn aðalburðarásinn í liðinu. Hún tekur þó ekki fyrir að hún muni snúa aftur til Stúdína en þá gerir hún ráð fyrir að það verði ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót.