spot_img
HomeFréttirStrákarnir hafa hjálpað okkur

Strákarnir hafa hjálpað okkur

Það er fámennt í Hólminum en Snæfellingar láta það ekkert á sig fá og kvennaliðin og karlaliðin sameinast um að hægt sé að halda 5 á 5 æfingar. Ætla sér að fara í úrslitakeppnina.

 

Leikmannahópurinn:

Númer

Nafn

Leikstaða

Hæð

Þyngd

Fæðingardagur

 

Anna Soffía Lárusdóttir

Bakvörður

174 cm

03-06-1999

 

Hrafnhildur Magnúsdóttir

Bakvörður

01-01-2000

 

Haiden Denise Palmer

28-03-1991

 

Kristín Birna Sigfúsdóttir

Bakvörður

05-05-2000

4

María Björnsdóttir

Framherji

176 cm

27-06-1990

4

Andrea Björt Ólafsdóttir

Framherji

172 cm

05-07-1995

5

Sara Diljá Sigurðardóttir

Framherji

182 cm

16-04-1995

10

Helga Hjördís Björgvinsdóttir

Framherji

177 cm

18-02-1991

10

Gunnhildur Gunnarsdóttir

Bakvörður

176 cm

17-08-1990

11

Berglind Gunnarsdóttir

Bakvörður

178 cm

17-02-1993

12

Alda Leif Jónsdóttir

Bakvörður

179 cm

18-04-1979

14

Hugrún Eva Valdimarsdóttir

Miðherji

182 cm

12-07-1990

15

Rósa Indriðadóttir

Bakvörður

176 cm

28-08-1989

15

Rebekka Rán Karlsdóttir

Bakvörður

157 cm

15-11-1996

 

 

Farnar:
Hildur Sigurðardóttir hætt (skórnir á hilluna), Kristen McCarthy til Rúmeníu
Komnar: 
Sara Diljá Sigurðardóttir og Andrea Björt Ólafsdóttir.

Hvernig hefur undirbúningur liðsins gengið í sumar og upp á síðkastið? 
Við erum með fáa leikmenn í hólminum, en strákarnir einsog undanfarin tvö ár hafa hjálpað okkur mikið að geta spilað 5 á 5, við erum með fjórar stelpur sem æfa með Breiðablik og það er stór hluti af liðinu, við notum því helgarnar vel og leikina sem við spilum núna á undirbúningstímabilinu.  Við söknum sárt Gunnhildi Gunnars sem er að kljást við brjósklos en vonandi fáum við hana sterka tilbaka.  

Komandi tímabil og væntingar þjálfara og liðsins til þess?
Við erum ríkjandi Íslandsmeistarar og vorum það einnig í fyrra, við höfum bæði tímabilin misst sterka leikmenn en við erum með báða fætur á jörðininni og ætlum okkur líkt og öll sjö liðin að koma okkur í úrslitakeppnina og sjá þá hvar við stöndum.

Hvaða lið telur þú sterkust í dag fyrir mót?
Haukar og Keflavík myndi ég telja sterkust, þar sem breiddin og gæðin í liðunum eru góð, annars held ég að deildin verði jöfn og skemmtileg.

Fréttir
- Auglýsing -