spot_img
HomeFréttirStórskotalið í þriggja stiga keppninni

Stórskotalið í þriggja stiga keppninni

Stjörnuleikur KKÍ fer fram í Ásgarði í Garðabæ á morgun. Fjörið hefst kl. 14:00 með undankeppni í þriggja stiga skotkeppninni. Það vantar ekki bomburnar í þriggja stiga keppnina þetta árið.
 
Svona lítur stórskotaliðið út:
 
1. Samuel Zeglinski · Grindavík
2. Eric James Palm · ÍR
3. Benjamin Curtis Smith · Þór Þ.
4. Kristján Pétur Andrésson · KFÍ
5. Jón Ólafur Jónsson · Snæfell
6. Carlos Medlock · Skallagrímur
7. Magnús Þór Gunnarsson · Keflavík
8. Justin Shouse · Stjarnan
9. Brynjar Þór Björnsson · KR
10. Jovan Zdravevski · Stjarnan
 
Aldrei þessu vant ætlar Karfan.is að gerast hrikalega hlutdræg og við tippum á að Kristján Pétur Andrésson leikmaður KFÍ muni rísa þarna upp og rassskella stóru bomburnar á borð við Jón Ólaf, Magnús Þór og Brynjar Björns. Nú ef þetta er ekki nóg til að kynda undir hinum níu skyttunum þá köstum við því einnig fram að sigur Kristjáns verði öruggur!
 
 
Mynd/ Kristján Pétur, verðandi sigurvegari í þriggja stiga keppninni, þið lásuð það fyrst hér!
  
Fréttir
- Auglýsing -