spot_img
HomeFréttirStórsigrar hjá ÍR og KR

Stórsigrar hjá ÍR og KR

21:43

{mosimage}

 

(Þorsteinn Húnfjörð var sprækur í liði Bikarmeistaranna í kvöld) 

 

Önnur umferð í Reykjavíkurmótinu fór fram í kvöld þar sem Íslandsmeistarar KR og Bikarmeistarar ÍR höfðu stórsigra. ÍR burstaði Valsmenn 91-61 í Seljaskóla og KR tók Fjölni í kennslustund á nýja parketinu í Grafarvoginum 72-111.

 

Viðureign Fjölnis og KR var aldrei spennandi og höfðu Íslandsmeistararnir tökin á leiknum allt frá upphafi til enda. Liðið var að hitta vel úr þriggja stiga skotum sínum enda valinn maður í hverju rúmi.

 

Valsmönnum tókst lengi vel að hanga í Bikarmeisturum ÍR en heimamenn stungu af á lokasprettinum án þeirra Eiríks Önundarsonar og Hreggviðs Magnússonar sem fylgdust með af tréverkinu.

 

[email protected]

 

{mosimage}

 

{mosimage}

 

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -