13:20
{mosimage}
Það verður stórleikur í 2. deild kvenna í kvöld þegar KR fær Fjölni í heimsókn í DHL-höllina. Þetta eru tvö efstu liðin í deildinni og eru þau í harðri baráttu um eitt laust sæti í Iceland Express deildinni á næsta tímabili.
Fjölnir sigraði fyrri leik liðanna á heimavelli sínum 56-52. Fjölnir er í efsta sæti deildarinnar með 26 stig en KR er í öðru sæti með 24 stig. Það nægir því fyrir KR að sigra leikinn í kvöld með 5 stigum til þess að komast í efsta sætið.
Bæði lið eiga svo eftir erfiða leiki í lokaumferðinni. Fjölnir fær Snæfell í heimsókn í Rimaskóla og KR á útileik gegn Skallagrím í Borgarnesi.
Það er því mikil spenna á lokasprettinum í 2. deild kvenna.
Mynd: [email protected]