spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaStólasigur í Stykkishólmi

Stólasigur í Stykkishólmi

Nýliðar Tindastóls í Bónus deild kvenna lögðu fyrstu deildar lið Snæfells í æfingaleik í Stykkishólmi á dögunum, 49-87, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf deildarkeppni, sem er um næstu mánaðarmót.

Í nokkuð jöfnu liði Tindastóls var það Inga Sólveig Sigurðardóttir sem var stigahæst með 19 stig. Henni næstar voru Paula Cánovas og Shaniya Jones með 15 stig hvor.

Fyrir Snæfell var Danie Shafer stigahæst með 22 stig og Charlotta Ellenreider bætti við 12 stigum.

Stigatafla leiks

Myndasafn (Bæring Nói)

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -