spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStólarnir ná í fyrrum liðsfélaga Martins

Stólarnir ná í fyrrum liðsfélaga Martins

Tindastóll hefur samið við Sadio Doucoure fyrir komandi tímabil í Bónusdeild karla.

Sadio er 31 árs 203 cm malískur leikmaður með franskt vegabréf, en hann kemur til Tindastóls frá Monastir í Túnis. Áður hefur hann einnig leikið fyrir félög í Frakklandi og Eistlandi. Þá lék hann fyrir Châlons-Reims frá 2017 til 2019, en þá var hann liðsfélagi landsliðsmanns Íslands Martins Hermannssonar.

“Sadio er mikill íþróttamaður og frábær varnarmaður. Ég hreifst mikið að dugnaði hans á vellinum og þeirri orku sem hann býr yfir. Við viljum tefla fram góðu varnarliði og ætlumst til að allir leikmenn liðsins séu vinnusamir á vellinum og leggi sig fram fyrir Tindastól. Sadio mun klárlega gera það. Þá er hann margrómaður karakter” segir Benedikt þjálfari liðsins.

“Ég er mjög spenntur að koma og spila fyrir Tindastól” segir Sadio. “Ég hef átt góð samskipti við bæði þjálfara og formann klúbbsins. Ég hef spilað með Martin Hermannssyni og spurði hann útí liðið og samfélagið og hann sagði mér bara góða hluti svo ég er fullur tilhlökkunar að koma í þennan bæ sem elskar körfubolta. Við fjölskyldan erum spennt að koma til Íslands, okkur hefur lengi langað til að heimsækja landið og við erum spennt að fá tækifæri til að búa þar og spila körfubolta. Ég hlakka til að kynnast liðinu og samfélaginu og leggja mitt af mörkum til að vinna leiki og ná í titla” bætir hann við.

“Það er spennandi tímabil framundan hjá klúbbnum á öllum vígstöðvum. Koma Sadio mun styrkja karlaliðið á öllum sviðum , bæði innan vallar sem utan” segir Dagur Þór formaður Tindastóls.

Fréttir
- Auglýsing -