spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStólarnir leiddu frá byrjun til enda í öruggum sigur gegn Þór

Stólarnir leiddu frá byrjun til enda í öruggum sigur gegn Þór

Tindastóll lagði Þór í æfingaleik í Síkinu í gærkvöldi, 95-83, en bæði undirbúa liðin sig þessa dagana fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla. Vel var mætt á leik gærkvöldsins í Síkinu, en samkvæmt heimildum Körfunnar voru þar á fjórða hundrað áhorfenda mættir til þess að bera leikinn augum. Leikurinn sjálfur var þó ekki jafn nema fyrstu fimm mínúturnar, en eftir það tóku heimamenn forystu sem þeir létu ekki af hendi til enda leiks.

Stigahæstur fyrir Stólana í leiknum var nýji maðurinn Giannis Agravanis með 19 stig. Honum næstir voru Davis Geks með 18 stig, Sadio Daucoure með 16 stig, Dedrick Basile með 14 stig, Arnar Björnsson með 13 stig og Adomas Drungilas með 10 stig.

Fyrir Þór var Ragnar Bragason atkvæðamestur með 17 stig, Marcus Brown var með 13 stig, Marreon Jackson, Davíð Arnar Ágústsson og Morten Bulow allir með 11 stig og Jordan Semple með 10 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Mynd / Tindastóll FB – Hjalti Árna

Fréttir
- Auglýsing -