Í stöðunni 68-68 með boltann í höndunum og öfráar sekúndur eftir af leiknum, gerði Martin Hermannsson sig tilbúinn að henda upp skoti frá miðju vallarins. Hann fann heldur Joel Hernandez að hlaupa upp kantinn og í betra færi. Martin kom boltanum á Hernandez í tæka tíð og hann setti niður þriggja stiga skot til að vinna leikinn. Æsispennandi lokasekúndur leiks LIU og Loyola Maryland sem lauk 71-68 fyrir LIU.
Martin Hermannsson spilaði mest allra í LIU eða 34 mínútur og skoraði 14 stig og var með 7 stoðsendingar.
Hildur Kjartansdóttir og UTRGV gjörsigruðu Concordia skólann 44-90 en Hildur skoraði 7 stig, tók 4 fráköst og varði 2 skot.
Kvennalið Marist skólans með Lovísu Henningsdóttur innanborðs tapaði illa fyrir Creighton 46-89 á sunnudaginn. Lovísa skoraði 7 stig og tók 3 fráköst.