spot_img
HomeFréttirStjörnufans í 3 stiga keppnunum í ár

Stjörnufans í 3 stiga keppnunum í ár

15:02
{mosimage}

Stjörnuleikir KKÍ fara fram um helgina og má gera ráð fyrir að margir körfuknattleikáhugamenn fylgist spenntir með þriggja stigakeppninni að þessu sinni. Í ár verður sú breyting á að sumar af bestu 3 stiga skyttum sögunnar munu taka þátt og etja þar með kappi við þá bestu í dag.

Eftirtaldar 3 stiga skyttur hafa boðað komu sína í karlakeppnina:

Guðjón Skúlason

Teitur Örlygsson

Kristinn Friðriksson

Valur Ingimundarson

Marel Guðlaugsson

Jón Arnar Ingvarsson

Herbert Arnarson

Falur Harðarson

Af þeim leikmönnum sem eru ekki að spila í dag skipa þessir kappar efstu sætin í flestum skoruðum 3 stiga körfum frá upphafi. Pálmar Sigurðsson mætir til leiks ef hann verður á landinu.

Þeir sem hafa skorað flestar 3 stiga körfur í ár og fá þann heiður að etja kappi við stjörnurnar eru:

Páll Axel Vilbergsson, Grindavík

Jakob Örn Sigurðarson, KR

Vésteinn Hafsteinsson, FSu

Gunnar Einarsson, Keflavík

Logi Gunnarsson, Njarðvík

Nemanja Sovic, Breiðablik

Jón Arnór Stefánsson, KR

Tyler Dunaway, FSu

Það má ljóst vera að 3 stiga keppnin í ár verður sú besta frá upphafi og enginn má láta framhjá sér fara.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -