56. Körfuknattleiksþing KKÍ samþykkti rétt í þessu að stjórn KKÍ ber að ákveða fyrir 1. júní 2025 hvert fyrirkomulag regluverks tengt erlendum leikmönnum verður.
Stjórn KKÍ á að hafa til hliðsjónar sérstaklega að það verði minnst 2 leikmenn með íslenskan ríkisborgararétt og að kanna hvort að þriggja ára reglan svokallaða beri að halda áfram með.