Stjarnan var rétt í þessu að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar með 97-78 sigri á KFÍ í Ásgarði. Gestirnir byrjuðu betur en voru fáliðaðir í dag, mættu með sjö leikmenn í Garðabæ.
Nánar verður fjallað um leikinn síðar í kvöld en Brian Mills var stigahæstur hjá Stjörnunni með 26 stig og 6 fráköst og Dagur Kár Jónsson bætti við 11 stigum og 10 stoðsendingum. Hjá KFÍ var Tyrone Bradshaw með 20 stig og 10 fráköst.
Þau lið sem komin eru í 8-liða úrslit:
Valur, Reynir Sandgerði, Stjarnan,
Leikir eftir:
Haukar b – Njarðvík
Grindavík – Fjölnir
Keflavík – Hamar
Snæfell – Þór Þorlákshöfn
Haukar – ÍR (á morgun – mánudag)