spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan semur við Jamar Akoh

Stjarnan semur við Jamar Akoh

Stjörnumenn tilkynntu nú fyrir skemmstu að liðið hefði samið við bandarískan leikmann fyrir átökin sem framundan eru í Domino’s deild karla. Sá heitir Jamar Akoh og er 23 ára bandarískur miðherji sem leikið hefur með Montana-háskóla undanfarin ár og útskrifaðist þaðan síðasta vor.

Á sínu síðasta ári í háskólaboltanum skilaði Akoh 15,5 stigum og 8,7 fráköstum fyrir Montana, en nú mun kappinn hefja atvinnumannaferilinn í Garðabæ. Í tilkynningu frá Stjörnunni segir að með undirskrift Akoh sé leikmannahópur liðsins nú tilbúinn og að undirbúningur liðsins fyrir tímabilið sé nú kominn á fullt. Stjörnumenn lönduðu deildar- og bikarmeistaratitli á síðasta tímabili, en duttu út úr úrslitakeppninni í undanúrslitarimmu við ÍR.

Fréttir
- Auglýsing -