spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan semur við einn af efnilegri leikmönnum Íslands

Stjarnan semur við einn af efnilegri leikmönnum Íslands

Ásmundur Múli Ármannsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna.

Ási sem er aðeins 16 ára kom inn í meistaraflokkshóp Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil og kom við sögu í 12 leikjum á tímabilinu, spilaði mest rúmar 11 mínútur gegn Keflavík þar sem hann skoraði 9 stig. Þá hefur hann verið einn af burðarásum í þeim yngri landsliðum sem hann hefur verið í á síðustu árum.

Fréttir
- Auglýsing -