spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan náði í sigur í Síkinu

Stjarnan náði í sigur í Síkinu

Stjarnan hafði betur gegn Tindastóli í æfingaleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld, 93-102, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir deildarkeppni Bónus deildarinnar sem rúllar af stað næstu mánaðarmót.Lengst af voru það heimamenn sem höfðu góð tök á leik kvöldsins, en þökk sé sterkum endasprett náði Stjarnan að landa sigri.

Stigahæstur heimamanna í leiknum var Dedrick Basile með 19 stig. Honum næstir voru Sigtryggur Arnar Björnsson og Ragnar Ágústsson með 17 stig hvor. Fyrir gestina úr Garðabæ var Ægir Þór Steinarsson atkvæðamestur með 27 stig og þá bætti Orri Gunnarsson við 18 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Myndir / Tindastóll FB

Fréttir
- Auglýsing -