Stjarnan varð á dögunum Íslandsmeistari í 9. flokki drengja eftir sigur á Breiðablik í úrslitaleik, 54-83.
Atkvæðamestur fyrir Stjörnuna í leiknum var Atli Hrafn Hjartarson með 21 stig, 6 fráköst og 6 stolna bolta.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af nýkrýndum Íslandsmeisturunum með þjálfara sínum Snorra Erni Arnaldssyni.
Fyrir Breiðablik var það Logi Guðmundsson sem dró vagninn með 13 stigum og 3 fráköstum.
Mynd / KKÍ