spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan fór létt með Njarðvík í Ásgarði

Stjarnan fór létt með Njarðvík í Ásgarði

Stjarnan lagði Njarðvík í kvöld á heimavelli sínum í Ásgarði í æfingaleik 91-66, en liðin undirbúa sig bæði fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla. Samkvæmt heimildum Körfunnar var leikur kvöldsins alls ekki spennandi. Þar sem snemma var ljóst að Stjarnan myndi fara með sigur af hólmi og náðu gestirnir úr Njarðvík aldrei að koma sér inn í leikinn.

Fyrir Stjörnuna var Hilmar Smári Henningsson stigahæstur með 23 stig. Þá skiluðu Ægir Þór Steinarsson 19 stigum og Orri Gunnarsson 17 stigum.

Stigahæstur Njarðvíkinga í leiknum var Dwayne Lautier með 20 stig. Honum næstir voru Mario Matasovic með 16 stig, Veigar Páll Alexandersson með 10 stig og Dominykas Milka með 8 stig.

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -