Á morgun miðvikudag hefst bikarvikan stórskemmtilega með undanúrslitum Geysisbikar kvenna. Um helgina verður einnig leikið til úrslita í bikarkeppni yngri flokka.
Tölfræðideild Körfunnar skoðaði hversu mörg lið félögin senda til leiks í helgina. Mikil spenna hefur verið í öllum flokkum en sjá má á á myndinni hér að neðan.
Stjarnan á flest liðin í bikarvikunni en félagið er það eina sem er bæði með lið í undanúrslitum karla og kvenna. Auk þess sendir Stjarnan flesta yngri flokka ásamt Njarðvík eða þrjá talsins.
Athygli vekur að sjö af ellefu félögum sem taka þátt í bikarvikunni eru af höfuðborgarsvæðinu og þrjú af suðurnesjum. Í raun er það einungis Snæfell sem er fyrir utan höfuðborgarsvæðið og suðurnes.
Súlurit af skiptingunni má finna hér að neðan: