Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap gegn stórliði Barcelona í Euroleague í kvöld, 88-73.
Á rúmum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 13 stigum, 2 fráköstum og 5 stoðsendingum, en hann var stigahæstur í liði Alba Berlin í leiknum.
Aðeins tvær umferðir eru búnar af deildarkeppni Euroleague, en Alba Berlin hefur tapað leikjum sínum í þeim báðum. Næst mæta þeir ASVEL frá Frakklandi í keppninni þann 15. október.