Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap gegn Bamberg í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 87-82.
Á rúmum 27 mínútum spiluðum skilaði Martin 28 stigum, frákasti, 3 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var bæði stiga og framlagshæstur í liði Alba Berlin í leiknum.
Alba Berlin hefur farið afleitlega af stað í deildinni þetta tímabilið, en eftir leik dagsins eru þeir í 16. sæti af 17 með tvo sigra í fyrstu sex umferðunum.