spot_img
HomeFréttirSterkur sigur gegn Eistlandi í Konya

Sterkur sigur gegn Eistlandi í Konya

Undir 16 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland í dag á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi, 79-76. Liðið hefur því unnið einn leik og tapað einum það sem af er riðlakeppni mótsins.

Atkvæðamest fyrir Ísland í leiknum var Rebekka Rut Steingrímsdóttir með 19 stig, 4 fráköst, 8 stoðsendingar og 8 stolna bolta. Næst henni var Sara Logadóttir með 13 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar og Ingibjörg Svaladóttir með 14 stig, 4 fráköst, 3 stoðsendingar og 4 stolna bolta.

Íslenska liðið á næst leik á morgun kl. 18:30 gegn Litháen, en það mun vera síðasti leikur liðsins í riðlakeppni mótsins.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -