spot_img
HomeFréttirStephen Madison sagt upp hjá Haukum

Stephen Madison sagt upp hjá Haukum

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur sagt upp samningi við Stephen Madison og mun hann því ekki leika með liðinu gegn Hetti í kvöld. Þetta staðfesti Ívar Ásgrímsson, þjálfari meistaraflokks Hauka í samtali við Karfan.is fyrr í dag.

 

"Við erum að leita að leikmanni sem er sterkari inni í teignum. Okkur vantar meiri sóknarþyngd þar og niðri á blokkinni," sagði Ívar. Hann sagði félagið ekki vera búið að ganga frá samkomulagi við nýjan erlendan leikmann en sú vinna væri í gangi og þau mál ættu að skýrast von bráðar.

 

Madison lék 10 leiki fyrir Hauka í vetur og leiddi liðið í flestum tölfræði þáttum; með 32 mínútur, 21 stig, 8 fráköst og 22 í framlag að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -