Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann Snæfells, Stefán Karel Torfason, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Snæfell tekur á mótir Keflavík kl.19:15 í kvöld í Stykkishólmi.
Áður höfðum við fengið lista frá:
Stefán:
"Tónlistin hjá mér fyrir leik er breytileg vinn ekki mikið með eitt og eitt lag heldur vel ég kannski bara einn tónlistarmann og hlusta bara á hann fyrir leik. Hér eru nokkrir sem mér finnst gott að hlusta á á leikdögum."
Trúir þú á engla – Bubbi Morthens
Það er eitthvað við þetta lag!
Leiðin okkar allra – Hjálmar
Hjálmar er bara band sem maður getur hlustað á aftur og aftur og maður fær ekki leið á þeim.
Vor í Vaglaskóg – Vilhjálmur Vilhjálmsson
Þetta var oft spilað heima hja mér þegar ég var yngri og bara allt með Villa Vill.
Chicken fried- Zac Brown Band
Hef alltaf verið obossiss sveitastrákur þannig þetta gerir góða hluti fyrir mig.
Stairway to heaven – Led Zeppelin
Skiptir ekki máli hvaða lag það er Led Zeppelin eru með þetta
Miðgarðsormur – Skálmöld
Fátt er betra að heyra en þegar Símon Hjaltalín (besti kynnir á landinu) er að kynna okkur drengina og rétt áður en ég hleyp inná völl setur hann skálmöld á phonin, það fullkomnar alveg upphitun.