spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaStarri semur við Selfoss

Starri semur við Selfoss

Selfoss hefur samið við Þorgrím Starra Halldórsson um að leika með liðinu á komandi tímabili í fyrstu deild karla.

Starri er 18 ára, 208 cm miðherji sem kemur til Selfoss frá KR, en hann er að upplagi úr Fjölni.

Þá hefur hann einnig verið hluti af yngri landsliðum Íslands, nú síðast um miðjan ágúst síðastliðinn með undir 18 ára liði drengja á Norðurlandamótinu í Kisakallio.

Tilkynning:

Þorgrímur Starri Halldórsson hefur gengið til liðs við Selfoss. Hann kemur úr Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem hann hefur alið manninn síðasta eitt og hálfa árið hjá KR.

Starri er 208 sm. miðherji, aðeins 18 ára gamall og á framtíðina fyrir sér. Hann hóf körfuboltaferilinn hjá Fjölni og æfði og keppti með yngri flokkum félagsins í 10 ár, áður en hann söðlaði um vestur yfir læk, þar sem hann æfði og spilaði með drengja, unglinga og m.fl. á síðasta tímabili.

Starri var í U16 landsliðshópnum og er nú nýkoinn frá Finnlandi þar sem hann var á NM með U18 landsliðinu.

Fréttir
- Auglýsing -