Tryggvi Snær Hlinason hefur verið lánaður til spænska úrvalsdeildarfélagsins Monbus Obradoiro út tímabilið. Þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni í morgun.
Fyrir nokkru var ljóst að Tryggvi væri á leið frá stórliði Valencia á láni til að fá meiri spiltíma. Mikill áhugi mun hafa verið fyrir að fá Tryggva hjá liðum í spænsku ACB-deildinni. Monbus Obradoiro og MoraBanc Andorra voru líklegust til að hreppa miðherjann frá Bárðardal en það fyrrnefnda hefur orðið fyrir valinu.
Monbus Obradoiro endaði í 12 sæti efstu deildar á síðustu leiktíð og hefur komið sér vel fyrir í efstu deild. Liðið er staðsett í Santiago de Compostela í norðvesturhluta Spánar.
Lið Valencia hefur fimm leikmenn sem allir geta spilað stöðu miðherja en franski landsliðsmaðurinn Louis Labeyrie samdi við liðið í síðustu viku. Mínúturnar sem Tryggvi hefði fengið voru því takmarkaðar.