spot_img
HomeFréttirSpennan í algleymingi: Oddaleikirnir í kvöld

Spennan í algleymingi: Oddaleikirnir í kvöld

11:39 

{mosimage}  {mosimage}

 

 

Í kvöld ræðst það hvaða lið fara í sumarfrí í Iceland Express deild karla og hvaða lið komast í úrslitaeinvígið. Kl. 19:15 mætast KR og Snæfell í sínum oddaleik í DHL-Höllinni í Vesturbænum og kl. 20:00 mætast Njarðvík og Grindavík í Ljónagryfjunni í Njarðvík. SÝN verður með beina útsendingu frá leik KR og Snæfells en mun sýna inn á milli frá hinum leiknum. Þegar leikurinn er að klárast í vesturbænum er seinni hálfleikur að hefjast í Njarðvík og þá mun SÝN vera með allan seinni hálfleikinn í beinni.

 

Leikur Njarðvíkur og Grindavíkur verður í beinni textalýsingu hér á Karfan.is undir liðnum ,,leikir í beinni” en eins og KR-inga er von og visa þá verða þar uppfærslur frá oddaleik KR og Snæfells á heimasíðu félagsins á www.kr.is/karfa svo það ætti enginn að missa af neinu í kvöld en vitanlega er langbest að mæta í húsið og sjá þessi fjögur lið leiða saman hesta sína.

 

KR-Snæfell

Leikur 5 – oddaleikur

DHL-Höllin kl. 19:15

 

UMFN-UMFG

Leikur 5 – oddaleikur

Ljónagryfjan 19:15

 

 

{mosimage} {mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -