Dregið var í undanúrslitum VÍS bikarkeppni karla og kvenna kl. 12:15 í Laugardalshöll í dag. Undanúrslitin munu fara fram í Laugardalshöll þann 10. og 11 janúar, en sjálf úrslitin verða svo leikin helgina eftir.
Karfan mætti á dráttinn og spjallaði það við Sólrúnu Ingu Gísladóttur leikmann Hauka. Haukar hafa unnið bikarmeistaratitilinn síðastliðin tvö tímabil, 2021 og 2022, en þær mæta fyrstu deildar liði Snæfells í undanúrslitunum.