Sólrún Inga Gísladóttir og Coastal Georgia Mariners máttu þola tap í kvöld fyrir St. Thomas University í bandaríska háskólaboltanum, 71-64. Mariners það sem af er tímabili með 50% sigurhlutfall, 10 sigra og 10 töp.
Á 30 mínútum spiluðum skilaði Sólrún Inga 6 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum. Næst leika Mariners gegn Webber International þann 15. febrúar.