Tveir gárungar frá Ítalíu létu sér fátt um finnast að segja upp dagvinnu sinni til þess eins að getað flogið til Bandaríkjanna og berja goð sitt augum í síðasta skipti. Það fer jú hver að verða síðastu að sjá Kobe Bryant spila körfuknattleik í NBA deildinni. Eins og flestir vita hefur Kobe gefið það út að hann komi til með að hætta í lok þessa tímabils og þá voru góð ráð dýr (rándýr) fyrir tvo unga menn frá Ítalíu.
Nú fyrst það var farið út í það að fara a leik þá fóru þessir menn alla leið. Keyptu sér miða á hliðarlínunni fyrir 6000 dollara, flug til Philadelphiu fyrir 2500 dollara og sem fyrr segir til að komast á leikinn sögðu þeir upp vinnu sinni.