spot_img
HomeFréttirSöfnunin gengur vel

Söfnunin gengur vel

Söfnunin hjá Körfunattleiksdeild Njarðvíkur fyrir góðgerðarleik félagsins næstkomandi föstudag gengur vonum framar. Nettó og Hagkaup hafa lagt félaginu lið með myndarlegum styrkjum sem renna í líknarsjóð Njarðvíkurkirkju. Karfan.is ræddi við Davíð Pál Viðarsson stjórnarmann hjá KKD UMFN vegna leiksins á föstudag en búist er við fjölmenni.
 
,,Við erum óendanlega þakklát þessum fyrirtækjum að taka þátt í þessu með okkur. Þeir sem starfa í félagsstörfum íþróttarfélaga þekkja það að þetta er mikið hark og vinna að safna saman peningum til að halda rekstrinum gangandi. Það er verið að herja á fyrirtæki með styrkveitingar og við erum t.d mikið búnir að selja fólki hina ýmsa neysluvörur í fjáröflunarskyni. Með þessum góðgerðarleik þá erum við að koma til móts við samfélagið okkar og láta gott af okkur leiða. Okkur finnst það vera brýnt á tímum sem þessum og á sama tíma erum við að efla okkar félag og umgjörð. Við hvetjum sem flesta að leggja þessu málefni lið hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar. Fyllum Ljónagryfjuna á föstudagskvöld og styðjum við gott málefni.  Það er hætt við því að þetta sé síðasti séns að sjá suma af okkar skærustu stjörnum í sögunni á ferðinni í Ljónagryfjunni,” sagði Davíð Páll.
 
Líknarsjóður Njarðvíkurkirkna mun fá ágóða leiksins óskiptann en á meðal þess sem hægt verður að gera til að styrkja málefnið er að kaupa sér sæti í þriggja stiga keppninni og þar verður að finna engar smá bombur eins og Teit Örlygsson, bróðir hans Gunnar Örlygsson og Jeb Ivey. Nánar um þriggja stiga keppnina hér.
  
Fréttir
- Auglýsing -