Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um hvernigþað hafi verið að gerast atvinnumaður, að koma til Ísland, eiga við meiðsli og margt fleira.
Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta. Sá fyrri er aðgengilegur hér, en í honum ræðir hann hvernig það hafi verið að alast upp í New York og spila með framhalds- og háskólaliðum þar.
Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.
Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.
Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.