spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaSnæfell upp í Subway deildina

Snæfell upp í Subway deildina

Fyrstu deildarlið Snæfells mun fylgja Stjörnunni og Þór Akureyri upp í Subway deild kvenna fyrir komandi tímabil.

Vegna fjölgunar í Subway deildinni var vitað að Þór og Stjarnan færu upp, þar sem þau léku til úrslita í fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili.

Nú hefur Snæfell einnig verið boðið að fara upp um deild þar sem ÍR gaf upp sæti sitt í Subway deildinni á dögunum, en Snæfell hafði endað í þriðja sæti deildarkeppninnar á tímabilinu. Samkvæmt heimildum Körfunnar mun ÍR vera með lið í fyrstu deild kvenna á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -