17:57
{mosimage}
Sigurður Þorvaldsson átti góðan leik fyrir Snæfell
Leikjum dagsins í Powerradebikarnum er nú lokið. Snæfell sigraði Þór Ak í Stykkishólmi 99-84 og í Grindavík sigraði Skallagrímur heimamenn sem fyrr segir 100-91 eftir að Grindavík leiddi 55-47 í hálfleik.
Sigurður Þorvaldsson átti góðan leik fyrir Snæfell og skoraði 35 stig en Justin Shouse og Anders Katholm skoruðu 15 hvor. Hjá Þór var Cedric Isom stigahæstur með 34 stig en Magnús Helgason skoraði 16 stig.
Í undanúrslitum mætir því Skallagrímur sigurvegaranum úr viðureign KR og Hamars og Snæfell mætir sigurvegaranum úr viðureign Njarðvíkur og ÍR.
Mynd: [email protected]