KR sendu nokkuð skýr skilaboð þegar þeir komu Grindvíkingum aftur niður á jörðina eftir háflug hingað til í úrslitakeppninni. 98:65 urðu lokatölur í fyrsta leiknum sem háður var í kvöld í DHL höllinni. Jafnt var á tölum fyrstu mínútur leiksins en KR leiddi með 13 stigum í hálfleik og völtuðu svo yfir gesti sína í þriðja leikhluta. PJ Alowoya var stigahæstur í jöfnu liði KR með 22 stig en hjá Grindavík var Dagur Kár Jónsson með 18 stig.
1:0 fyrir KR og næsti leikur í Grindavík á Föstudagskvöld. Meira um leikinn síðar í kvöld