spot_img
HomeFréttirSkráningu lýkur í kvöld á 3x3 mót Ármenninga í Laugardalshöll

Skráningu lýkur í kvöld á 3×3 mót Ármenninga í Laugardalshöll

Það styttist rækilega í að körfuboltaveturinn hefjist og eru æfingar hjá félögunum að fara af stað þessi misserin.

Fyrsta körfuboltamótið fyrir yngri flokka fer fram þann 31. ágúst næstkomandi þegar Ármann heldur 3X3 mót í Laugardalshöllinni fyrir 11-16 ára. Keppni í 3×3 hefur heldur betur rutt sér til rúms síðustu ár en til að mynda var keppt í greininni á Ólympíuleikunum sem er nýlokið.

Mótið fer fram helgina 31. ágúst-1. september næstkomandi og er fyrir árganga 2008-2013. Skráning fer fram á [email protected] og er síðasti séns til að skrá sig 27. ágúst. Skráningagjald er 6000-kr.

Síðasti séns til að skrá lið á mótið er í dag en skráningu lýkur á miðnætti í kvöld, 27. ágúst. Það ætti engin að missa af þessu frábæra tækifæri að hefja körfuboltatímabilið í Höllinni á þessu stórskemmtilega móti.

Fréttir
- Auglýsing -