spot_img
HomeFréttirSkráning hafin í sumarbúðir BIBA – 23. til 27. júní 2025

Skráning hafin í sumarbúðir BIBA – 23. til 27. júní 2025

Sumarbúðir BIBA verða haldnar í Skógarseli frá 23. til 27. júní fyrir 9 til 16 ára drengi og stúlkur.

BIBA búðirnar innihalda stöðvaæfingar fyrir hádegi og hópvinnu eftir hádegi. Þá munu leikmenn sem sækja búðirnar einnig fá fyrirlestra um hin ýmsu málefni sem snerta bæði almenna heilsu og körfubolta. Þá eru búðirnar einnig byggðar upp á leikjum og keppni, en farið verður í maður á mann, víta og þriggja stiga keppni. Að lokum er svo stjörnuleikur þar sem að bestu leikmenn búðanna eru verðlaunaðir.

Búðirnar eru frá mánudegi til föstudags, kl. 09:00 til 17:00.

Innifalið í verðinu:

  • 5 daga körfuboltadagskrá.
  • 5+ klukkustundir af körfuboltaþjálfun alla dagana.
  • Búningur
  • Hádegismatur
  • Vinna í litlum hópum með frábærum körfuboltaþjálfurum og meginmarkmiðið að þróa grundvallarfærni í körfubolta til undirbúa hvern íþróttamann að fullu fyrir komandi tímabil.
  • 8 fræðslufyrirlestrar tengdir körfubolta (næring, líkamlegur undirbúningur, tæknileg taktísk myndbönd leikreglur o.s.frv.).
  • Verðlaun fyrir alla sigurvegara í 1 á móti 1, vítakeppni og þriggja stiga keppni.

Hérna er hægt að skrá sig

Skráningarfrestur: 1. apríl 2025

Frestur til greiðslu: 1. maí 2025

Hérna er Facebook BIBA

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að heimsækja BIBA á Facebook hér, eða hafa samband í gegnum tölvupóst [email protected].


Fréttir
- Auglýsing -