Körfuboltaþjálfarinn Jamil Abiad verður með körfuboltakamp í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 1. og 2. júní.
Jamil Abiad er þrautþreyndur þjálfari eða “personal basketball trainer” eins og hann kallar sig. Jamil hefur haft það af atvinnu að þjálfa atvinnumenn í körfubolta. Jamil hefur sett mikinn svip á íslensku úrvalsdeildina í ár, en hann hefur hjálpað landsliðsmönnunum Kristófer Acox og Kristni Pálssyni að ná nýjum hæðum með leik sínum í vetur.
Æft verður tvisvar á dag laugardag og sunnudag í tveimur hópum. Búðirnir eru fyrir körfuboltakrakka á aldrinum 8 – 17 ára.
Skráning á kampinn og meiri upplýsingar má finna hér
Meiri upplýsingar um Jamil má finna hér og á IG hér