Gatorade körfuboltabúðirnar árlegu fara fram í Valshöllinni að Hlíðarenda þann 15. til 18. júní 2020. Þetta er 19. árið í röð sem búðirnar fara fram en það er Ágúst Björgvinsson þjálfari hjá Val sem er yfirþjálfari að vanda. Búðirnar í ár eru frá mánudeginum 15. júní til fimmtudagsins 18. júní næstkomandi, en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfubolta-stráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færa þjálfara sem munu þjálfa í búðunum. Körfuboltabúðirnar eru á milli 18:30 og 21:30 og verðið er 9.000- krónur.
Allt útlit er fyrir metþátttöku í ár og því mikilvægt að skrá sig fyrr frekar en síðar.
Skráning er hafin hér.
Karfan leit við í búðunum fyrir tveimur árum, tók nokkur viðtöl og tók stöðuna. Myndbandið er hér að neðan:
Nánari upplýsingar á tölvupósti: [email protected]