Coleman Ayers frá By Any Means Basketball heldur körfuboltanámskeið í páskafríinu mánudag-miðvikudag 25-27. mars í Skógarseli íþróttahúsi ÍR.
100+ sóttu námskeiðið í fyrra og það sló eftirminnilega í gegn.
Æfingatímar:
10-13 ára (5-8. bekkur) 10:00-12:00
14+ ára (9.fl og eldri) 13:00-15:00
Hver æfing er 2 klst en salurinn er laus fyrir/eftir svo að áhugasamir leikmenn geta mætt fyrr (~30 mín) og hangið lengur (~60 mín) til að skjóta, spila, spjalla við þjálfarana og fá einstaklings-miðaða hjálp með sinn leik.
Innifalið í skráningunni er aðgangur að 1 af 7 online prógrömmum hans:
“Ultimate Athleticism Program” — “Small Guard Essentials” — “Lockdown Defender Program” — “Ultimate Ball-Handling Program” – “Advanced Ball Handling Extension” — “Ultimate Shooting Program” — “Mental Skills Academy”
Verð: 14.900kr
Ekki hika við að hafa samband á [email protected] ef einhverjar spurningar vakna.