spot_img
HomeFréttirSkellur gegn Kýpur

Skellur gegn Kýpur

Kýpur vann í dag stórsigur gegn okkar drengjum 52-81 á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg. Axel Kárason fyrirliði íslenska liðsins skoraði fyrstu stig leiksins og var það í eina skiptið sem Ísland var yfir í leiknum. Fljótlega náðu Kýpurmenn undirtökunum og héldu áfram sínu striki þar til leikurinn var búinn og sanngjarn sigur þeirra því miður staðreynd. Strákarnir hafa lokið keppni á Smáþjóðaleikunum og enda í 3.sæti af fimm þjóðum sem tóku þátt í körfuboltakeppni karla á Smáþjóðaleikunum 2013 og fá þeir bronsið afhent á verðlaunafhendingu á morgun kl.16:15 að íslenskum tíma.
 
Pétur Sigurðsson þjálfari hafði þetta að segja að leik loknum „Fyrstu mínúturnar voru ágætar og stemmdi í hörkuleik en því miður þá virtumst við verða algjörlega bensínlausir og fótalausir. Við hættum að hitta úr skotunum okkar og fórum að gera okkur lífið mun erfiðara. Þeir gengu á lagið, þeirra sjálfstraust jókst og því fór sem fór.“
Hvernig fannst þér mótið í heild sinni?
?„Ótrúlega skemmtilegt mót, vel að málum staðið – útkoman ásættanleg, unnum tvo og töpuðum tveimur og bronsið staðreynd. Þetta mót var góð reynsla fyrir ungu leikmennina okkar. ?Nú tekur við landsliðsprógram í júlí – þá er ferð til Kína, æfingaleikir heima við Dani og síðan undankeppni Evrópumótsins í ágúst þar sem við spilum við Rúmeníu og Búlgaríu.“
 
KKÍ greinir frá
Mynd/ KKÍ: Frá viðureign Kýpur og Íslands í dag.
  
Fréttir
- Auglýsing -