Skallagrímur hefur samið við Maju Michalska um að leika með liðinu í Dominos deild kvenna á komandi leiktíð. Maja er pólsk en hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár.
Maja er 23 ára gamall bakvörður sem er frá Piastow í Póllandi. Hún lék með High Point háskólanum árin 2013-2016 en lék lokaárið sitt hjá Southeastern University. Þaðan útskrifaðist hún síðan síðasta vor og er þetta því fyrsti atvinnumannasamningur hennar. Á síðasta ári hennar var hún með 6 stig og 3 fráköst að meðaltali í leik en hún lék rúmar 20 mínútur.
Nokkrar breytingar eru á liði Skallagríms fyrir komandi leiktíð í Dominos deild kvenna. Ari Gunnarsson verður áfram með liðið og fer nú inní fyrsta undirbúningstímabil sitt með liðið. Ljóst er að Jóhanna Björk Sveinsdóttir mun yfirgefa liðið. Fyrr í sumar hafði liðið samið við Bryeasha Blair.