spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaSjö leikmenn semja við Selfoss

Sjö leikmenn semja við Selfoss

Nýliðar Selfoss í fyrstu deild kvenna sömdu í vikunni við sjö leikmenn fyrir komandi tímabil.

Aðalbjörg Sara Olsen Bjarnadóttir, Diljá Salka Ólafsdóttir, Elín Þórdís Pálsdóttir, Eva Margrét Þráinsdóttir, Eva Rún Dagsdóttir, Kolbrún Katla Halldórsdóttir og Perla María Karlsdóttir munu allar vera með liðinu á fyrsta tímabili þeirra í deildinni.

Eva Rún söðlar um og kemur til liðsins frá Tindastól og þá eru Aðalbjörg Sara, Diljá, Elín og Eva Margrét afrakstur yngri flokka starfsins á Selfossi. Perla María dregur skónna fram á ný, en hún spilaði síðast með Ármenningum í 1. deild og að lokum kemur Kolbrún Katla til liðs við okkur frá ÍR. Davíð Ásgrímsson þjálfari liðsins segir að “liðið sé skipað ungum og efnilegum leikmönnum sem hafi margar hverjar lagt grunninn að stofnun liðsins og því sé mikil spenna í gangi fyrir komandi tímabili”.

Samkvæmt fréttatilkynningu eru mörkuð tímamót í sögu félagsins þar sem meirihluti leikmanna meistaraflokks kvenna í dag hafa slitið skónum á parketinu á Selfossi frá barnsaldri. Guðbjörg Bergsveinsdóttir formaður félagsins segir: “Það er markmið félagsins að gefa ungum og efnilegum iðkendum tækifæri að spila fyrir sitt heimalið í meistaraflokkum félagsins og t.d. æfði og spilaði hópur ungra uppalinna leikmanna með meistaraflokki karla síðasta vetur. Félagið ákvað að endurvekja meistaraflokk kvenna nú í vor og mun ungt og efnilegt lið keppa í 1.deildinni í vetur. Selfoss karfa hefur ekki átt kvennalið í 10 ár og því talsvert átak að koma því í gang. Liðið byggir að langstærstu leiti á leikmönnum undir tvítugu af svæðinu en iðkendur allt niður í 13 ára hafa fengið að taka þátt í æfingum í sumar. Lykilástæður þess að farið var af stað með meistaraflokk kvenna er að yngri iðkendur okkar hafi fyrirmyndir í sinni grein, það sé spennandi að hafa eitthvað að stefna að í sinni heimabyggð og hvetja enn fleiri stelpur að koma í körfu.” 

Fréttir
- Auglýsing -