Martin Hermannsson og Valencia unnu í gærkvöldi öruggan sigur á Manresa í ACB deildinni á Spáni, 112-82. Valencia eru eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 17 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.
Á 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 12 stigum, frákasti, 7 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Martin var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins í leiknum með sjö stykki, en hér fyrir neðan má sjá samantekt af þeim.