Undir 18 ára lið Íslands vann í kvöld fyrsta leik sinn í B-deild Evrópumótsins, 82-65 gegn Lúxemborg. Liðið þurfti á sigri að halda í dag eftir þrjú svekkjandi töp í byrjun móts.
Ísland var í bílstjórasætinu allan leikinn en stakk algjörlega af í seinni hálflega og sérstaklega í fjórða leikfjórðung. Íslenska liðið lék á allsoddi í fjórða leikhluta þar sem Sigvaldi Eggertsson tróð boltanum til að mynda tvisvar með tilþrifum. Lokastaðan 82-65 fyrir Íslandi og fyrsti sigurinn staðreynd.
Fréttaritari Körfunnar í Makedóníu ræddi við Sigvalda Eggertsson eftir leik í kvöld.