Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos máttu þola tap gegn Real Betis með minnsta mun mögulegum í Primera deildinni á Spáni í dag, 90-89.
Á rúmum 26 mínútum spiluðum í leiknum var Jón Axel með 10 stig, frákast og 5 stoðsendingar.
Fyrir leik dagsins hafði Burgos ekki tapað leik í deildinni, en þeir eru eftir hann enn í efsta sætinu með sjö sigra og eitt tap.