spot_img
HomeFréttirSigurganga Jóns og Burgos heldur áfram á Spáni

Sigurganga Jóns og Burgos heldur áfram á Spáni

Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos lögðu Obradoiro í Primera deildinni á Spáni í dag, 85-91.

Á rúmum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel sjö stigum, frákasti og fjórum stoðsendingum.

Frekar lítið er liðið af deildarkeppninni þetta tímabilið, en Burgos fara vel af stað, eru á toppi deildarinnar með sigur í fyrstu fjórum umferðunum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -