spot_img
HomeFréttirSigurður I: Erum ekki að leita sem stendur

Sigurður I: Erum ekki að leita sem stendur

 "Við erum sem stendur ekkert að leita af nýjum manni fyrir Steven. Þetta náttúrulega kom bara upp í gær þegar hann hringdi í mig eftir æfingu og sagðist vera að fara til Spánar." sagði Sigurður Ingimundarson inntur eftir því hvort nýr maður myndi fylla skarð Steven Gerrard sem fer til Oviedo á Spáni.
 "Þetta er í spænsku silfur deildinni og þetta er hugsanlega stökkpallur fyrir hann eða í það minnsta finnst honum það.  Það var klausa í samningnum hans að hann mætti fara ef betra tilboð myndi berast og því ekkert sem við getum gert enda viljum við ekki standa í vegi fyrir leikmanna sem vilja fara frá klúbbnum. " sagði Sigurður ennfremur.
 
Arnar Freyr Jónsson er aðal leikstjórnandi liðsins en hefur verið meiddur í allan vetur meira og minna og framhaldið með hann lítur alls ekki vel út.  "Hann fer í speglun á liðþófa á föstudag en þetta var að koma núna upp hjá honum.  Við vonum auðvitað það besta og að hann nái sér sem fyrst og komist á völlinn en á meðan mun ég treysta á ungu strákana í að fylla skarðið sem Steven skilur eftir sig. Ég tók hann á sínum tíma því ég vissi hvað ég var að fá annars hefði ég líkast til ekki fengið neinn."
 
Næsti leikur Keflvíkinga er á fimmtudag gegn Grindavík en sterkar heimildir  herma að Ryan Pettinella muni koma til með að klæðast gulri treyju í þeim leik.  
Fréttir
- Auglýsing -