Valur lagði Tindastól í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna í Subway deild karla, 84-79. Valsmenn því komnir með yfirhöndina í einvíginu 2-1 og þurfa aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Karfan spjallaði við Sigurð Gunnar Þorsteinsson leikmann Tindastóls eftir leik í Origo Höllinni.